Samfylkingin verst árás Pírata: „Ekkert óheiðarlegt eða spillt“

Mikið uppnám varð innan raða Samfylkingarinnar undir færslu Lenyu Rúnar Taha Karim, varaþingmanns Pírata, á Twitter. Þar fullyrðir Lenya að tölurnar í seinni talningunni í Norðvesturkjördæmi byggi á „augljóslega spilltum kjörgögnum.“ Hún skýtur föstum skotum á Jóhann Pál Jóhannsson, þingmann Samfylkingarinnar sem tók jöfnunarþingsæti Lenyu í kjölfar seinni talningarinnar.

„Er það svona sem Jóhann Páll Jóhannsson ætlar að byrja baráttu gegn spillingu og óheiðarleika á þingi?“ segir Lenya í færslu sinni á Twitter og vitnar í orð Jóhanns í viðtali við Morgunblaðið. Þar segir hann að annað hvort uppkosning eða seinni tölur eigi að gilda. Lenya er ekki allskostar sammála og þykir furðulegt að þingmaður sem á sæti sínu seinni tölunum að þakka sjái lítið annað í boði en að láta þær standa – eða þá kjósa aftur.

Aldís Mjöll Geirsdóttir, lögfræðingur og alþjóðastýra Ungra jafnaðarmanna, var ekki lengi að koma flokksfélaga sínum til varnar. Hún furðar sig á þessari færslu Lenyu og segir: „Æ, er þetta ekki frekar ósanngjörn nálgun? Það er rétt að þetta eru þeir kostir sem eru í stöðunni skv lögum. Ekkert óheiðaregt eða spillt að benda á það. Fyndist þér rétt að láta ranga talningu skv yfirkjörstjórn gilda? Hefur 'fyrri talningin' ehv gildi?

Lenya stendur ekki á svörum og svara Aldísi um hæl: „Ég veit ekki alveg hversu mikið vægi yfirkjörstjórn í NV-kjördæmi hefur þegar að Ingi Tryggva ákvað að ráðast í endurtalninguna að eigin frumkvæði. Annars var Hafsteinn Þór með gott take rétt í þessu á opnum fundi undirbúningskjörbréfanefndar varðandi lagaheimildina.“

Aldís tekur málflutning Lenyu til greina en lætur ekki kyrrt liggja. „Finnst þér rétt að bendla JPJ við óheiðarleika og spillingu fyrir að benda á þá möguleika sem lög gera ráð fyrir í annars mjög snúinni stöðu?“ segir Aldís.

Dagbjört Hákonardóttir, persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar og frambjóðandi Samfylkingarinnar til Alþingis í Reykjavík norður, blandar sér í umræðuna. „Það er erfitt fyrir okkur öll sem höfum hagsmuni af ýmist fyrri eða seinni talningu að líta hlutlægt á það hvort fyrri eða seinni talning skuli gilda. Jóhann Páll er hins vegar vægast sagt ólíklegur til að láta stjórnast af sérhagsmunum,“ segir Dagbjört.

Hún heldur áfram og segir: „Við værum hins vegar ekki í þessari stöðu ef við hefðum aðgang að sjálfsögðum og stjórnarskrárbundnum réttarúrræðum skv. t.d. 6. gr. MSE. Þannig væri lögreglurannsókn í gangi sem myndi kanna gerðarbækur, ræða við vitni o.s.frv.“

Í þriðja og síðasta svari sínu við færslu Lenyu segir Dagbjört: „Það væri síðan dómstóla að dæma um réttmæti kosninga og/eða ýmist talninganna tveggja. Var formanni landskjörstjórnar t.d. yfir höfuð heimilt að hafa samband við formann hverfiskjörstjórnar í hádeginu 26. september sl.? Þingheimur á ekki að skera úr þessum vafa.“

Jóhann Páll sjálfur lætur ekki sitt eftir liggja og tjáir sig í svari við færslu Lenyu. Þar hengir hann við greinina í heild sinni og segir: „Ég bendi á að þetta eru möguleikarnir sem kosningalög og þingsköp gera ráð fyrir, ég styðji kæru vegna framkvæmdar í NV og það geti vel farið svo að ég greiði atkvæði gegn lögmæti eigin kosningar. Spillt eða óheiðarlegt? Verður bara hver að dæma fyrir sig.“

Fleiri þungavigtarmenn innan grasrótar Samfylkingarinnar taka til máls, þar á meðal Ólafur Kjaran Árnason, varaformaður Ungra jafnaðarmanna.

„Baráttan fyrir því að RANGAR TÖLUR GILDI BARA er óskiljanleg. Hægt að færa rök fyrir uppkosningu. En þessi slagur um að tölur gildi sem yfirkjörstjórn segir rangar og ekkert bendir til að séu réttar (og ómögulegt er sannreyna) – það er andlýðræðislegt rugl,“ segir Ólafur.