Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir á Twitter að kominn sé tími á ofurár hjá henni. Hún fagnar því um þessar mundir að í ár verða 20 ár liðin síðan hún gifti sig, fæddi dætur sínar tvær, kláraði MBA-nám sitt í Kaliforníu og byrjaði í nýrri og spennandi vinnu.
„Finnst kominn tími aftur á svona ofurár hjá mér. Einhverjar tillögur?,“ segir hún á Twitter.
Það er skemmst frá því að segja að Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, kemur með athyglisverðustu uppástunguna – að minnsta kosti fyrir þá sem hafa áhuga á pólitík. „Mynda framsýna alþjóðasinnaða ríkisstjórn með mér?“ segir hún.
Hanna Katrín svarar þessu ekki beint en virðist hreint ekki taka illa í athugasemd Helgu Völu. „Tími fyrir drykk?“ segir hún og lætur broskarl fylgja.
Alþingiskosningar fara fram þann 25. september næstkomandi og er óhætt að segja að spennan fari stigvaxandi með hverri vikunni sem líður. Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup, sem fjallað var um í fréttum RÚV í gærkvöld, er fylgi Samfylkingarinnar 17,0% en fylgi Viðreisnar 10,0%.
Það er ljóst að mikið þarf að breytast ef þessir flokkar eiga að mynda tveggja flokka ríkisstjórn. Svo er það auðvitað möguleiki að fá aðra flokka að borðinu en tíminn einn mun leiða í ljós hvað gerist á haustmánuðum.
Fyrir 20 árum gifti ég mig, fæddi stelpukrúttin mín, kláraði meistaranámið, flutti aftur heim frá Kaliforníu og byrjaði í nýrri og spennandi vinnu.
— Hanna-Katrín (@HannaKataF) January 4, 2021
Finnst kominn tími aftur á svona ofurár hjá mér. Einhverjar tillögut?