Bandaríska samfélagsmiðlastjarnan og ljósmyndarinn Kyana Sue Powers sem barðist fyrir dvalar- og atvinnuleyfi á Íslandi fyrir ekki svo löngu síðan birti afar áhugavert myndband í dag.
Kyana hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir fallegar landslagsmyndir og myndbönd af Íslandi en hún segist sjálf ástfangin af landi og þjóð.
Í nýju myndbandi hennar ákvað hún hins vegar að viðurkenna að það eru nokkrir hlutir sem Íslendingar gera sem hún hefur átt erfitt með að venjast. Hátt í fimmtíu þúsund manns hafa séð myndbandið þegar þetta er skrifað.
Nr 1. Íslendingar sjúga upp í nefið
Kyana segist eiga afar erfitt með að venjast því að Íslendinga eru sífellt að sjúga upp í nefið í stað þess að snýta sér. Hún segir þetta mikinn ósið í Bandaríkjunum.
Nr 2. Íslendingar borða harðfisk í kringum annað fólk
Harðfisklyktin fer afar illa í Kyana sem skilur ekki hvers vegna Íslendingar borða harðfisk á almannafæri.
Nr 3. Íslendingar ropa án þess að afsaka sig
Kyana segist hafa orðið vitni af því margoft að Íslendingar ropa á almannafæri án þess að afsaka sig. Þetta er ekki eitthvað sem hún er búin venjast
Nr 4. Snjómokstur á Íslandi í ruglinu
Kyana skilur ekki hvernig land sem fær snjó svona oft á veturna sé ekki með betri snjómokstur á bæði vegum og gangstéttum. En þetta er eitthvað sem Íslendingar hafa verið að pirra sig á líka.
Nr. 5. Íslendingar tala á innsoginu
Kyana á oft eftir með að skilja okkur Íslendinga því við tölum svo mikið á innsoginu . Þegar hún kom hingað fyrst hélt hún að fólk væri móðgað en nú er hún farin að gera þetta sjálf eftir að hafa búið á Ísland
Nr. 6. Ást Íslendinga á Pepsi Max
Hvers vegna virðast allir Íslendingar elska Pepsi Max? Kyana skilur þetta ekki.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.
@kyanasue These are like my like Iceland Icks like omg #iceland #reykjavik #íslandstiktok ♬ A song with a moist and calm atmosphere(1013287) - inakome