Sala ís­lenska nef­tóbaksins hrunin

Sala á ís­lensku nef­tóbaki hefur hrunið það sem af er þessu ári, sam­kvæmt tölum frá Á­fengis- og tóbaks­verslun ríkisins.

Við­skipta­blaðið greinir frá því að fyrstu tíu mánuði þessa árs hafi salan dregist saman um 43%. Þannig höfðu 38,5 tonn af nef­tóbaki selst fyrstu tíu mánuði ársins í fyrra en það sem af er þessu ári nemur salan 21,6 tonnum.

Miðað við að hver dolla af nef­tóbaki sé 50 grömm nemur fækkunin 338 þúsund dósum af nef­tóbaki fyrstu 10 mánuði ársins.

Við­skipta­blaðið bendir á að ríkið hafi fengið í sinn hlut um 1,5 milljarð króna í gegnum sölu nef­tóbaks á síðasta ári en við­búið er að sú upp­hæð muni lækka veru­lega í ár.

Minnkandi eftir­spurn eftir ís­lensku nef­tóbaki má vafa­laust rekja til svo­kallaðra nikó­tín­púða sem inni­halda ekki tóbak. Púðarnir hafa notið vaxandi vin­sælda, sér­stak­lega meðal ungra ís­lenskra karla sem nota þá frekar en ís­lenska ruddann.

Auk þess að inni­halda ekki tóbak eru púðarnir tals­vert ó­dýrari en ís­lenska nef­tóbakið. Kostar dósin hér á landi yfir­leitt um þúsund krónur á meðan ís­lenska nef­tóbakið kostar víða vel á fjórða þúsund krónur dósin.