„Mér finnst fínt að búa á Íslandi en ég sakna heimaborgar minnar, Moskvu; sérstaklega pabba míns og vina minna,“ segir Kristina Dodonova er þrettán ára listakona af rússneskum ættum og nemandi við Waldorfskólann Sólstafi. Kristina er í viðtali við Lífið í Fréttablaðinu í dag þar sem sjá má fagrar andlitsmyndir sem hún teiknar eftir pöntun.
Hún hefur verið búsett hér á landi síðan 2017 þegar hún flutti hingað til lands með móður sinni og yngri systir. Athygli vekur að hún talar reiprennandi íslensku, eftir aðeins 3 ár hér á landi. Hins vegar hefur hún ekki farið til Rússlands í tvö ár og saknar heimalandsins.
Í frístundum leggur Kristina stund á bardagaíþróttina „capoeira“ og teiknar réttnefnd listaverk. „Ég var átta ára þegar í ljós kom að ég væri flink að teikna. Ég hef síðan haldið áfram að þróa mig við að teikna og er alveg sjálfmenntuð.
„Að teikna andlit er eins og að tala tungumál“, segir hún í viðtalinu. „Mér finnst áhugavert þegar erfitt er að tala um hlutina að léttara sé að teikna og tjá tilfinningar í augum og svipum andlitanna.“ Kristina teiknar eftir ljósmyndum, svart hvítar myndir með blýanti en líka í lit með trélitum sem hún bleytir í vatni og fær þannig vatnslitaáferð.
Hægt er að panta teikningar hjá Kristinu á Instagram-síðunni hennar: @apencilandahand.