Sakar launa­sjóð mynd­listar­manna um spillingu: Vafa­söm og ó­fag­leg vinnu­brögð

Mynd­listar­maðurinn Snorri Ás­munds­son sendi opið bréf til Lilju Al­freðs­dóttur, mennta­mála­ráð­herra, og kvörtun til um­boðs­manns Al­þingis vegna meintrar spillingar í launa­sjóði mynd­listar­manna.

Í launa­sjóði mynd­listar­manna í ár sátu Al­dís Arnar­dóttir, for­maður, Unnar Örn Jónas­son og Sigurður Árni Sigurðs­son. Snorri bendir á það að þeir sem sátu í starfs­launa­nefndinni með Al­dísi árið áður hafi báðir fengið lista­manna­laun í ár.

„Sindri Leifs­son sat í starfs­launa­nefndinni með Al­dísi Arnar­dóttur árið 2020. Nú 2021 er Al­dís for­maður nefndarinnar og Sindra er veitt hæstu starfs­laun í ár. Svo fengu Unnar Örn og Sigurður Árni sem nú eru í nefndinni með Al­dísi 12 mánaða starfs­laun þegar Sindri Leifs­son var í nefndinni í fyrra.“

Snorri telur þetta benda til þess að nefndar­menn séu lík­legri til að sam­þykkja um­sóknir þeirra sem áður hafa setið í nefndinni.

Ólíðandi vinnubrögð


„Þessi vinnu­brögð eru afar vafa­söm, ó­fag­leg og ó­líðandi. Nefndinni er auk þess ekki gert að rök­styðja af­stöðu sína til um­sóknanna og ýtir það en frekar undir vinar­greiða og bitlinga,“ í­trekar Snorri.

„Ég óska eftir að mennta­mála­ráðu­neytið verði með augun opin svo spilling eigi sér ekki stað.“