Katrín Lóa Kristrúnardóttir segir Helga Vilhjálmsson, betur þekkt sem Helga í Góu hafa kynferðislega áreitt sig eftir að hafa lánað henni fyrir útborgun í íbúð á meðan hún starfaði í hjá fyrirtæki í hans eigu. Þetta kemur fram á vef Stundarinnar.
Þar kemur fram að Katrín hafi starfað hjá Helga í sjoppunni Skalla á Selfossi, sem er í sama húsi og KFC. Sjálfur hefur Helgi sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann biður Katrínu Lóu afsökunar vegna málsins.
Á vef Stundarinnar kemur fram að áreitið hafi hafist árið 2018 og staðið fram til ársins 2019 þegar Katrín var 23 til 24 ára gömul. Katrín lýsir því í viðtalinu hvernig sér hafi borist til eyrna að í fyrirtækjum Helga hefði það tíðkast að starfsfólk fengi lánafyrirgreiðslu til íbúðakaupa sem síðan væru dregin af launum þeirra.
Hún segist hafa þegið það og var í tvígang lagður peningur inn á reikning Katrínar í desember 2018 og í febrúar 2019. Fjármunirnir komu hinsvegar beint frá Helga sjálfum.
Katrín lýsir því í Stundinni hvernig Helgi hafi brotið á henni strax vikuna eftir að hún fékk fyrstu greiðsluna inn á reikning sinn. Hún lýsir því hvernig Helgi hafi komið inn á skrifstofu til sín í sjoppunni og rifið bol sinn upp.
„Og svo rífur hann bolinn upp og ég var ekki í topp. Þetta eru þröngir vinnubolir og ég var bara á brjóstunum innanundir. Og ég sit þarna bara og ég var bara í sjokki,“ segir Katrín við Stundina.
Hægt er að lesa ítarlega umfjöllun Stundarinnar hér.