Vigdís Hauksdóttir segir Dag B. Eggertsson borgarstjóra misnota sér aðstöðu sína og útsvar borgarbúa í þágu eigin framboðs. Þetta kom fram í viðtali við Vigdísi á Útvarp sögu.
Vigdís segir Dag lítið sjáanlegan nema skömmu fyrir kosningar.
„Hann er bara úti að leika með peningana okkar, núna gerist það sama og í kosningabaráttunni og síðast hann er með heilsíðuauglýsingar í dagblöðunum, hann er búinn að stilla upp sviði í ráðhúsinu sem bíður eftir honum, auglýsir þar grimmt, tekur opna fundi til þess að kynna stefnumálin sín, hann er að bjóða eldri borgurum í kosningakaffi fyrir kosningar og svo framvegis, hann notar útsvarspeningana okkar í að auglýsa sjálfan sig upp í kosningabaráttu“, segir Vigdís.