Saka inn­viða­ráð­herra um lygar: „Sigurður Ingi veit, eins og allir sem hafa lesið frum­varpið, að það eru hrein ó­sannindi“

Týr,skoðana­dálkur Við­skipta­blaðsins, fer ekki fögrum orðum um Sigurð Inga Jóhanns­son inn­viða­ráð­herra í nýjum skoðana­dálki.

Við­skipta­blaðið segja Sigurð fara með rang­færslur og saka hann um að vera af­vega­leiða þjoðina þegar það kemur að leigu­bíla­frum­varpinu svo­kallaða.

„ Eins og farið var yfir fyrir stuttu í Við­skipta­blaðinu er þetta frum­varp hráka­smíði.

Mbl.is ræddi við hinn svo­kallaða inn­viða­ráð­herra um leigu­bíla­frum­varpið. Þar má segja að ráð­herranum hafi tekist að af­vega­leiða les­endur á met­tíma.

Þar sagði Sigurður:

„Ég hef sagt það áður að frum­­varpið er ekki lagt fram til þess að Uber eða Lyft geti komið til lands­ins en sam­­kvæmt frum­­varp­inu geta far­veiturn­ar þó komið til lands­ins ef þær upp­­­fylla sömu skil­yrði og leigu­bíl­arn­ir."

„Ef þær [far­veiturnar] upp­­­fylla sömu skil­yrði og aðrir þá eru þær vel­komn­ar, það er eng­um bannað að koma."

Við­skipta­blaðið segir þetta rangt.

„Frum­varpið er aug­ljós­lega samið með það að mark­miði að koma í veg fyrir að far­veitur komi hingað til lands.

Það sést best á fyrsta skil­yrði frum­varpsins til að fá rekstrar­leyfi:

Hefur lög­heimili innan Evrópska efna­hags­svæðisins og starfs­stöð hér á landi sem er virk og traust. Frá þeirri starfs­stöð skal starf­seminni vera stjórnað og þar skulu öll grunn­við­skipta­skjöl er varða reksturinn vera geymd og að­gengi­leg.

Starfs­stöð á Ís­landi er slík hindrun í vegi þess að Uber og Lyft myndu koma hingað að nánast úti­lokað er að það muni gerast. Til við­bótar er gerð krafa um lög­gildan gjald­mæli en rekstur far­veitnanna byggist á því að gjald­mælarnir séu í for­riti í síma bæði bíl­stjóra og við­skipta­vinar.“

„Sigurður Ingi veit því, eins og allir sem hafa lesið frum­varpið, að það eru hrein ó­sannindi að far­veiturnar séu vel­komnar. Það sem verra er, er að ráð­herrann segir ó­satt vitandi betur,“ segir Við­skipta­blaðið enn fremur.

„Meðan al­menningur bíður í röð eftir leigu­bíl, stundum klukku­stundum saman, þá getur hinn sami al­menningur huggað sig við að Sigurður Ingi þarf aldrei að bíða eftir bílnum, ráð­herra­bílnum – sem er á kostnað skatt­greið­enda,“ segir i lok pistilsins.