Fjölskylduhjálp Íslands vinnur nú hörðum höndum við að skipuleggja úthlutun sína fyrir jólin. Úthluta átti mataraðstoð í dag og áttu Íslendingar á umsækjendalistanum að ganga fyrir.
„Við munum þá byrja á Íslendingunum sem sóttu um jólaaðstoð. Og ef vel gengur þá í beinu framhaldi erlenda ríkisborgara með íslenskar kennitölur,“ segir í færslu Fjölskylduhjálpar Íslands á Reykjanesi.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir þetta brot á stjórnarskrá og saka fjölmargir undir með honum og saka fjölskyldhjálp um rasisma.
„Ekki trúa mér, skoðið bara stjórnarskránna. Þetta er mismunun,“ segir Björn Leví um bendir til 65. Gr. stjórnarskrárinnar um að allir skulu jafni fyrir lögum.
Fjölskylduhjálp á Reykjanesi tók færsluna út og birti nýja færslu nú rétt fyrir hádegi sem segir það hafi aldrei hefði verið meiningin að mismuna neinum.
Allir væru jafnir. Úthlutanir ættu að fara fram á tveimur dögum því svo margir skjólstæðingar þyrftu túlka við úthlutun.
Það hefur hins vegar ekki stöðvað fólk frá því að saka Fjölskylduhjálp og formann Fjölskylduhjálpar um rasisma undi færslu Björns.
„Er þessari fjölskylduhjálp stýrt af sömu pelskellingunni og rasistanum í Reykjavík?“ skrifar Hrafndís Bára og taka þónokkrir undir með henni.
„Það er svo sannarlega búið að benda þeim sem að þessu standa á að þetta er ekkert nema ólögleg mismunun, en þeir/þær/þau láta það sem vind um eyru þjóta,“ skrifar Bergur Ísleifsson.
„Heilagurskítur og ómægodess þau bara létu þetta út úr sér!! Hvernig fær þetta apparat að starfa!“ skrifar Kristrún Ýr Einarsdóttir.
„Þú veist að ,,Fjölskylduhjálp Íslands " er einkafyrirtæki Ásgerðar Jónu Flosadóttir, og borgar sér arð ? Hún gerir bara það sem henni dettur í hug,“ segir Jón Ragnarsson.
Svo dæmi séu tekin.