Þrír starfsmenn Ferðamálastofu hafa sent formlega kvörtun vegna Ferðamálastjóra. Í kvörtuninni er hann sakaður um einelti og ofbeldi gagnvart þeim. Ferðamálastjóri vísar þessum ásökunum á bug en vegna trúnaðarskyldu getur hann ekki tjáð sig efnislega um málið. Greint var frá þessu í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi.
Menningar- og viðskiptaráðuneytið óskaði eftir úttekt á stjórnarháttum Skarphéðins Bergs Steinssonar, ferðamálastjóra.
Skarphéðinn er sakaður um að hafa tekið geðþóttaákvarðanir, fylgja ekki stjórnsýslulögum og tala með fyrirlitningu um opinbera starfsmenn og virðist líta niður á þá.
Stjórnunarhættir hans valda samstarfsfólki hans vanlíðan, kvíða og ótta í starfi. Starfsfólk þorir ekki að tala gegn honum. Skarphéðni er lýst sem „drottnara“ og „hrokafullum besserwisser.“
Samkvæmt úttektinni þarf ferðamálastjóri að leita sér stjórnendahandleiðslu til að vinna að því að breyta stjórnunarstíl sínum.
Málinu er ólokið, unnið er að því að koma tillögum ráðgjafa í framkvæmd. Ekki lagt til að Skarphéðni verði vikið úr starfi eða veitt áminning vegna málsins.