Sagt upp stuttu eftir líkamsárás - Segir vinnubrögðin óboðleg

Sigurði Hólm Gunnarssyni hefur verið sagt upp sem Forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík. Honum var sagt upp ásamt öllu öðru starfsfólki áfangaheimilisins. Hann segir ástæðuna líklega vera mikla myglu sem fannst í húsnæði skammtímaheimilisins.

Í samtali við Fréttablaðið greindi Sigurður frá því að honum hefði verið sagt upp á meðan hann var í veikindaleyfi vegna líkamsárásar sem hann varð fyrir af höndum skjólstæðings. Hann sagði uppsögnina því mikið áfall.

Í færslu sem Sigurður birti á Facebook gagnrýnir hann vinnubrögð Reykjavíkurborgar varðandi uppsögnina, sem hann segir óboðleg. Hann skrifar:

„Hver eru þá skilaboðin til starfsmanna sem vilja gera athugasemdir við vinnuaðstæður? Jú, augljóslega þau að þegja. Því um leið og starfsmenn eru meðvitaðir um að eðlilegar athugasemdir um fagmennsku og öruggar vinnuaðstæður geti leitt til þess að þeir missi vinnuna þá hugsa þeir sig tvisvar um. Það hafa nefnilega fæstir opinberir starfsmenn efni á því að verða skyndilega atvinnulausir.“