Flest bendir til þess að Katrín Sif Einarsdóttir, íbúi á Tjarnargötu í miðbæ Reykjavíkur, geti ekki farið í nauðsynlegar úrbætur til að bæta brunavarnir íbúðar sinnar. Katrín er í athyglisverðu viðtali um málið í Fréttablaðinu í dag.
Þar segist Katrín, sem keypti sér ósamþykkta þakíbúð á Tjarnargötu á síðasta ári, hafa farið að velta fyrir sér brunavörnum eftir harmleikinn á Bræðraborgarstíg í sumar. Í ljós kom að þeim var ábótavant og nefnir Katrín að fjórar íbúðir hússins hafa allar aðgengi að svölum á bakhlið þess en ekki er fyrir því að fara í íbúð Katrínar.
„Ég get mögulega skriðið út á þak í gegnum litla glugga en þar yrði ég föst,“ segir Katrín Sif. Úr varð að Katrín fékk arkitekt til að hanna lausn og stóð til að gera kvist á þakið og litlar inndregnar svalir. „Þaðan gæti ég komist á svalirnar fyrir neðan mig,“ segir hún í viðtalinu.
Katrín bjóst ekki við öðru en að málið yrði auðsótt og hafði hún sótt um breytingar hjá byggingar- og skipulagsstjóra. Það eina sem vantaði var samþykki annarra íbúa og þar stóð hnífurinn í kúnni. Einn eigandi í húsinu neitaði beiðni Katrínar.
„Sá aðili notar íbúðina sem skrifstofu og vinnur þar í tvo tíma á dag. Hann sagði bara þvert nei strax og tilkynnti mér að ég hefði ekki átt að kaupa íbúðina og ætti að selja hana aftur,“ segir Katrín Sif.
Katrín furðar sig á málinu og segir að framkvæmdirnar allar yrðu á hennar kostnað og myndu ekki valda neinu raski. Þá væru þær ekki sýnilegar öðrum íbúum né frá götu.
Katrín segir furðulegt að sjálfsögð réttindi eins og aðgangur að brunaútgangi séu háð samþykki nágranna. „Fyrst að það er löglegt að vera með lögheimili sitt í ósamþykktum íbúðum þá á hið opinbera að grípa inn í þegar brunavörnum er ábótavant og ýta með einhverjum hætti á að húsfélagið finni lausn á vandamálinu í sameiningu. Harmleikurinn við Bræðraborgarstíg sýnir að það er víða þörf til þess að bæta úr þessum málum.“
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu. Meðfylgjandi mynd tók Anton Brink.