Færeyingar setja spurningarmerki við það að Íslendingar einblíni á massatúrisma og hafa þeir sjálfir engin áform um að stórfjölga ferðamönnum í eigin landi.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Í fréttinni kemur fram að Færeyingar líti svo á að upplifun ferðamanna af eyjunum sem perlu yrði stefnt í voða ef margir gestir heimsæktu eyjarnar.
Eins og þeir sem komið hafa til Færeyja vita eru eyjarnar einstaklega fallegar og Færeyingar skemmtilegir heim að sækja. Talið er að um 200 þúsund ferðamenn muni heimsækja eyjarnar í ár en á sama tíma er búist við því að á þriðju milljón heimsæki Ísland.
Björn Þorláksson, blaðamaður Fréttablaðsins, var í Færeyjum og ræddi meðal annars þessi mál við heimamenn.
Á Hilton hótelinu í Þórshöfn til dæmis segist starfsfólk vinna sérstaklega með það í huga að halda upplifun gesta sinna á rólegum nótum. Sumir starfsmanna hótelsins segja að þeir hafi sjálfir alist upp í dalnum sem blasir við frá hótelinu.
Þá er haft eftir starfsmanni á hótelinu að Færeyingarnir reyni að vera sögu sinni trúir í ferðaþjónustu sem öðru. Bent er á það að mjög fáa aðflutta starfskrafta sé að finna í hópi þeirra sem umgangast gestina á hótelinu mest en á sama tíma ber erlent vinnuafl íslenska ferðaþjónustu uppi. Benda þeir á að meiri gæði séu fólgin í þjónustu ef staðkunnugir starfsmenn svara spurningum ferðamanna.
Þá er sagt frá sögu sem gengið hafi í Þórshöfn þess efnis að sá sem aki hringinn í kringum Ísland geti átt von á að hitta aldrei einn einasta Íslending sem starfsmann þótt hann gisti á tíu ólíkum hótelum.