Sagaði niður aspir á Flat­eyri: Gróður­settar til minningar um þá sem létust í snjó­flóðunum

Héraðs­dómur Vest­fjarða hefur dæmt karl­mann, Svein Yngva Val­geirs­son, til greiðslu 200 þúsund króna sektar og rúm­lega 640 þúsund króna í máls­kostnað, fyrir að saga niður níu aspir á Flat­eyri.

Frétta­blaðið fjallar um þetta mál í dag en um er að ræða aspir sem voru gróður­settar til minningar um þá sem létust í snjó­flóðunum í þorpinu árið 1995.

Í frétt Frétta­blaðsins kemur fram að aspirnar hafi staðið við lóð á Drafnar­götu þar sem Sveinn bjó. Sagðist hann hafa óskað eftir því að á­halda­húsið á Flat­eyri gerði eitt­hvað í sam­bandi við aspirnar þar sem þær yxu og slægjust í hús hans. Þá væri þak hússins þakið kvoðu.

Úr varð að Sveinn fjar­lægði aspirnar sjálfur á eigin kostnað og sagðist hann hafa talið sig vera að gera sveitar­fé­laginu greiða. Svo var þó ekki og sagðist Matt­hildur Ása Hauks­dóttir, Garð­yrkju­full­trúi Ísa­fjarðar­bæjar, aldrei hafa rætt málið við Svein og hann ekki haft sam­band við hana.