„Ég get lifað lengur með öllum núverandi takmörkunum en plís getum við afnumið grímuskyldu?“
Þessari spurningu varpar grínistinn Saga Garðarsdóttir fram á Twitter-síðu sinni.
Eins og komið hefur fram mun Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggja til tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum innanlands vegna góðs árangurs að undanförnu. Hvers eðlis þær verða liggur ekki endanlega fyrir en einhverjir hafa kallað eftir því að því sem næst skilyrðislaus grímuskylda verði afnumin.
Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, tekur að minnsta kosti heilshugar undir með Sögu og segir:
„Ég skal leggjast á hnén fyrir framan þríeykið og gráta. Ég hef aldrei hatað neitt jafn mikið, fundið jafn mikið fyrir innilokunarkennd sjálfs míns og andremmu. Bugast jafn mikið í hvert sinn sem ég þarf að vera innan um fólk innanhúss. Gerðu það, elsku besti Þórólfur. GERÐU ÞAÐ.“
Ég get lifað lengur með öllum núverandi takmörkunum en plís getum við afnumið grímuskyldu?
— Saga Garðarsdóttir (@harmsaga) February 2, 2021