Í samtali þeirra Jóns G. og Finns Geirssonar, forstjóra Nóa-Síríusar, ræða þeir meðal annars um afa Finns, Hallgrím Benediktsson. Hann var einn helsti athafnamaður sinnar samtíðar og þekktastur fyrir fyrirtækin sín H. Ben. og Nóa-Síríus. Saga hans er ævintýrið um dreng sem ólst upp í fátækt hjá frænda sínum á Austfjörðum og fluttist til Reykjavíkur þar sem hann komst í álnir og varð athafnamaður, alþingismaður, bæjarfulltrúi – sem og þekktur glímukappi.
„Faðir hans (Hallgríms) varð blindur snemma þannig að heimilið leystist upp og börnunum var komið fyrir hér og þar,“ segir Finnur í þætti Jóns G. „Hann ólst upp hjá frænda sínum, rétt fyrir utan Seyðisfjörð, þannig að hann þurfti að hafa fyrir lífinu. Hann kom til Reykjavíkur um tvítugt og fór í verslunarskóla en þurfti að hætta eftir eitt ár vegna peningaleysis. En svo sá hann tækifæri til að gerast heildsali og stofnaði heildverslunina; H. Ben.“
Hjólin fóru að snúast og hann varð mjög umsvifamikill í íslensku viðskiptalífi á árunum eftir að hann keypti Brjóstsykursgerðina Nóa árið 1924 en hún var stofnuð árið 1920. Hann keypti því næst hreinlætisvöruverksmiðjuna Hrein og síðar súkkulaðiverksmiðjuna Síríus frá Danmörku.
Þá byggði hann eitt stærsta iðnaðarhús þess tíma í Reykjavík; Barónstíg 2, á horni Barónstígs og Skúlagötu.
Hann var þekktur glímukappi og keppti tvisvar á Ólympíuleikum; 1908 og 1912. „Hann var þó líklegast þekktastur fyrir að hafa unnið Konungsglímuna 1907,“ segir Finnur, en þar lagði hann Jóhannes Jósefsson, (Jóhannes á Borg) að velli.
Sjá myndband hér að neðan.