Saga flugfélagsins Ernis á Hringbraut í kvöld

Atvinnulífið hefst að nýju á Hringbraut í kvöld eftir nokkurt hlé á þessum vönduðu þáttum sem voru á dagskrá Hringbrautar frá upphafi fram á vor 2019. Í þáttunum eru hin ýmsu fyrirtæki heimsótt og saga þeirra og starfsemi sýnd á mjög myndrænan hátt og rætt við forsvarsmenn og eigendur. Í þessum fyrsta þætti á þessu ári verður saga Flugfélagsins Ernis rakin í tveimur þáttum og sá fyrri er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 20.

Í þættinum tekur Hörður Guðmundsson flugstjóri og einn af stofnendum Ernis á móti Sigurði K. Kolbeinssyni þáttastjórnanda og segir frá því helsta sem er að gerast hjá Erni um þessar mundir. Þá verður farið víða um Vestfirði þ.m.t. á Gjögur, Þingeyri, Ingjaldssand, Bolungarvík og Bíldudal þar sem Hörður lýsir þeirri flugstarfsemi sem Ernir ráku á Vestfjörðum á árunum 1970-1996, allt þar til flugfélagið flutti starfsemi sína á Reykjavíkurflugvöll. Myndataka er í höndum Friðþjófs Helgasonar.

Síðari hluti umfjöllunar um Erni verður á Hringbraut mánudaginn 12. október kl. 20.00.