Safna fyrir útför Ómars: Varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn um helgina

Aðstandendur ungs Íslendings, Ómars Andrésar Ottóssonar, sem varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn síðastliðinn sunnudag, hafa hrundið af stað söfnun fyrir flutning hans til Íslands og útför hér á landi.

Í færslu á Facebook, sem deilt hefur verið víða, kemur fram að Ómar hafi verið tvítugur verðandi stúdent en hann hafði búið í Kaupmannahöfn í nokkur ár með fjölskyldu sinni.

„Nú hefur þessi afar hjartahlýi, fyndni, og umhyggjusami ungi maður í blóma lífsins verið numinn skyndilega og óvænt frá fólkinu sínu. Ómar var rétt að hefja lífið og frelsið eftir menntaskólaárin var rétt handan við hornið,“ segir meðal annars í færslunni.

Aðstandendur eru nú í því ferli að undirbúa Ómar fyrir flutning til Íslands en það er mjög kostnaðarsamt.

Hægt er að leggja fjölskyldunni lið með eftirfarandi hætti:

Bankareikningur í Danmörku: 0400 4021890834

Bankareikningur á Íslandi: 0513-26-200174

Kennitala. 110174-3499

Reikningseigandi: Sigurlína Andrésdóttir