Safna fyrir fjölskyldu Guðlaugar: Bráðkvödd á þriðjudag - „Skarðið er stórt og höggið mikið“

Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir aðstandendur Guðlaugar Rögnu Magnúsdóttur sem varð bráðkvödd á heimili sínu á Akureyri aðfaranótt síðastliðins þriðjudags.

Fyrst var greint frá söfnuninni á vefnum Akureyri.net. Guðlaug var aðeins 32 ára þegar hún lést og lætur hún eftir sig sambýlismann og tvö börn, 8 og 14 ára.

Í umfjöllun DV um málið er haft eftir Ölmu Axfjörð, tengdamóðir Guðlaugar, að hún hafi elskað börnin sín meira en allt og verið listræn. Heimili fjölskyldunnar hafi borið merki þess.

„Skarðið er stórt og höggið mikið. Erfiðir tímar eru framundan fyrir alla ástvini Guðlaugar,“ hefur DV eftir Ölmu. Ákveðið var að hefja söfnun fyrir barnsföður Guðlaugar og börnin á þessum erfiðu tímum. „Það er nóg að glíma við sorgina og missinn svo ekki bætist við fjárhagsáhyggjur fyrir litlu fjölskylduna. Við höfum því ákveðið að hefja söfnun fyrir barnsföður og börn hennar til að reyna að létta undir fyrir þau. Margt smátt gerir eitt stórt.“

Upplýsingar um söfnunina má sjá hér að neðan en reikningurinn er á nafni barnsföður Guðlaugar.

0370  22  016829  
Kennitala: 310188 2559