Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Pétursdóttur, sem lést á Blönduósi þann 21. ágúst síðastliðinn.
Greint er frá söfnuninni á vef Húnahornsins, héraðsfréttamiðli fyrir Húnvetninga nær og fjær. Styrktarreikningurinn er á kennitölu Blönduóskirkju og eru þakkir færðar til allra sem sjá sér fært um að styrkja fjölskylduna á þessum erfiðu tímum.
„Í ljósi þeirra hörmulegu atburða sem áttu sér stað á Blönduósi þann 21. ágúst síðastliðinn hefur verið opnaður styrktarreikningur til stuðnings eiginmanni hennar og börnum svo fjölskyldan þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur á þessum erfiða tíma.
Við biðjum ykkur að senda hlýjar hugsanir og kærleik til fjölskyldunnar sem á um sárt að binda og kærar þakkir til allra sem sjáið ykkur fært að styrkja þau.
Fyrir þá sem vilja leggja söfnuninni lið þá er reikningsnúmerið 0307-26-004701, kt. 470169-1689 (Blönduóskirkja).“