Sævar svarar netníð síðustu daga: „Gleðst yfir mörgu“

Sævar Helgi Bragason, oftast þekktur sem Stjörnu-Sævar svarar fyrir þann netníð sem yfir hann hefur gengið síðustu daga með tísti sem hann birti á Twitter síðu sinni í dag.

Þar segist hann gleðjast yfir mörgu og þá meðal annars að: „Að sjá ekki kommentakerfin, þessu fína ári sem senn er á enda, gjörbreytta orðræðu um flugelda, björtum fallegum vetrardögum og geggjuðu kampavíni sem verður sötrað annað kvöld,“ segir Sævar helgi í tísti sínu en býður einnig landsmönnum að eiga gleðilegt nýtt ár.

„Gleðilegt ár, megi áramótin og næsta ár vera geggjað skemmtileg hjá öllum“

Sævar hefur verið duglegur að gagnrýna notkun landsmanna á flugeldum undanfarin ár en hann hefur meðal annars lagt til að almenn notkun á flugeldum verði bönnuð mörgum til mismikillar ánægju.

Hann telur að of mikla mengun leggi af þessari vinsælu hefð landsmanna sem og að flugeldarnir séu hættulegir bæði dýrum og mönnum.

Þá tjáði hann sig einnig þann 28. Desember á Twitter síðu sinni þar sem hann sagði að „slæmar hefði er best að rjúfa“ en sá 28. Des er einmitt fyrsti dagurinn þar sem löglegt er að skjóta upp flugeldum.