Sævar látinn 73 ára að aldri – Leikmenn Stjörnunnar léku með sorgarbönd

Sævar Jónsson, viðskiptafræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Loftorku í Reykjavík, er látinn 73 ára að aldri. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag en Sævar lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ þann 7. apríl.

Sævar var iðkendum og stuðningsmönnum Stjörnunnar í Garðabæ að góðu kunnur og var hann virkur í starfi knattspyrnudeildar í áratugi. Kom hann að ýmsum stórum verkefnum sem verktaki og sat í aðalstjórn, byggingarnefnd Stjörnuheimilisins og vallarstjórn knattspyrnuvallanna.

Sævars var minnst með mínútuþögn fyrir leik Stjörnunnar og Víkings í 1. umferð Bestu deildar karla þann 10. apríl síðastliðinn og léku leikmenn Stjörnunnar með sorgarbönd í leiknum.

Sævar var viðskiptafræðingur að mennt og starfaði hjá Loftorku í 44 ár, en þá þurfti hann að láta af störfum eftir alvarlegt slys.

Sævar lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn og átta barnabörn. Útför hans verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ þann 24. apríl næstkomandi.