Sævar Helgi vill ganga lengra í endurvinnslu: „Piss er bara 95% vatn“

Umhverfissinninn Sævar Helgi Bragason segir að vel sé hægt að nota vatn úr pissi til að aðstoða svæði þar sem ferskvatn er af skornum skammti. Sævar Helgi fór á misgeðslegar slóðir þegar hann ræddi um endurvinnslumál í Morgunútvarpinuá Rás 2 í morgun.

Hann sagði að margir staðir ættu erfitt með að verða sér út um ferskvatn, til dæmis eyjur og staðir með mikilli mengun.

„En, nú á að gera tilraun í Svíþjóð þar sem verið er að þróa leiðir til að nýta þvag úr mönnum á svolítið nýstárlegan hátt og það er ekki síst gert vegna þess að þvag er rosalega ríkt af næringarefnum,” segir Sævar Helgi. „Piss er bara 95% vatn.“

Fór hann svo út í fleiri atriði tengd sjálfbærni, þar á meðal að borða skordýr.

Var hann þá spurður: „Framtíðin er að við verðum öll að drekka piss og borða skordýr?“

Því svaraði hann játandi.

„Í París er verið að byggja blokk þar sem sérstök klósett verða sem safna þvaginu saman og það verður nýtt í þessum tilgangi og sömuleiðis verður fasti úrgangurinn okkar tekinn og hann kreistur til að safna saman vatni og nota efni þar í eitt og annað,” sagði Sævar.