Sæ­var Helgi með mikil­væg skila­boð - Alls ekki kaupa þetta

Sæ­var Helgi Braga­son, rit­stjóri Stjörnu­fræði­vefsins og bar­áttu­maður fyrir betri um­hverfis­vitund, sendir for­eldrum, ömmum og öfum á­huga­verð skila­boð á Twitter-síðu sinni.

Þar gerir hann helíum-blöðrur að um­tals­efni og bendir á að helíum sé tak­mörkuð auð­lind sem þarf að gæta vand­lega. Helíum er frum­efni, svo­kölluð eðal­l­oft­tegund, og gerir það að verkum að blöðrur sem fylltar eru með efninu svífa upp í loftið sé þeim sleppt. Þá vekur það jafnan kátínu þegar glaum­gosar anda efninu að sér.

En Sæ­var Helgi segir mjög mikil­vægt að sóa þessu mikil­væga efni enda er það notað í göfugri til­gangi en að fylla blöðrur. Sæ­var bendir á að helíum sé ó­missandi í læknis­fræði.

Á netinu má finna ýmsan fróð­leik um helíum og er til dæmis bent á að erfitt sé að nálgast efnið þó það sé býsna al­gengt. Sæ­var Helgi hvetur fólk til að kaupa ekki helíumblöðrur en vart þarf að taka fram að á morgun er 17. Júní. Sæ­var Helgi endar færsluna á þessum orðum:

„Blaðran er úr slit­sterku plast­efni sem sundrast í plastrusl sem brotnar seint og illa niður í um­hverfinu og dýr halda að sé fæða.“