Sævar fékk það óþvegið í gær: Sjáðu hvað hann gerði til að svara fyrir sig

Sævar Helgi Bragason, oft kallaður Stjörnu-Sævar, vakti talsverða athygli í gær þegar hann nefndi hluti sem eru skaðlegri börnum en bólusetningar. Hringbraut fjallaði meðal annars um færsluna sem vakti talsverða athygli.

Sævar sagði að fólk mætti hafa áhyggjur af ýmsu öðru en bólusetningum barna og nefndi ýmis atriði máli sínu til stuðnings. Þannig væru bílar, of lítil hreyfing, svifryksmengun, skortur á félagslífi og lélegt mataræði allt atriði sem væru skaðlegri börnum en bólusetningar.

Margir hafa sterkar skoðanir þegar kemur að bólusetningum og fékk Sævar að heyra það frá sumum þeirra. Undir færslu hans á Facebook eru komnar býsna margar athugasemdir frá þeim sem eru á móti bólusetningum. Sævar hlustar ekki á slíkt raus og brást hann við með ákveðnum hætti í morgun.

„Þetta and-bólusetningarfólk varð mér hvatning til að kaupa bóluefni frá @unicefisland fyrir börn um allan heim. Hvet aðra sem eiga allt og vantar ekki nokkurn skapaðan hlut til að gera það sama,“ sagði Sævar Helgi á Twitter-síðu sinni í morgun. Hann birti svo skjáskot af millifærslu til UNICEF Ísland en um var að ræða 60 þúsund krónur. Ljóst er að fyrir tilstilli Sævars munu fjölmörg börn geta þegið bóluefni gegn kórónuveirunni.

Sævar Helgi sagði á Twitter-síðu sinni í gær að ellefu ára sonur hans væri smitaður af Covid-19 þessa stundina og barnsmóðir hans líka.

„Það sem ég vildi óska þess að hún hefði fengið örvunarskammt nú þegar og hann fulla bólusetningu. Í staðinn verða jólin þeirra í einangrun.“