Sævar Helgi Bragason á sér aðeins einn draum fyrir þessi jól. Samfélagsmiðlastjarnan og rithöfundurinn deilir þessu á Twitter síðu sinni.
Þar segist hann einungis vilja eitt fyrir jólin og það er dagur þar sem ekki er minnst á Covid. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi VG segist hjartanlega sammála Sævari.
„Ég var einmitt að hugsa þetta. Af hverju eru stanslausar fréttir hvern einasta dag á öllum fjölmiðlum um hversu margir greindust, hvar þeir búa, hvort þeir séu á spítala o.s.frv. Það er gott að vita og vera meðvitaður en það hlýtur að vera fleira að frétta en bara covidtölur.“
Ég var einmitt að hugsa þetta. Af hverju eru stanslausar fréttir hvern einasta dag á öllum fjölmiðlum um hversu margir greindust, hvar þeir búa, hvort þeir séu á spítala o.s.frv. Það er gott að vita og vera meðvitaður en það hlýtur að vera fleira að frétta en bara covidtölur. https://t.co/cZZIlFXBpf
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) December 3, 2021