Sæunn óvænt boðuð á fund með Ás­mundi Einari: „Ég var satt að segja slegin út af laginu“

Sæunn Kjartans­dóttir, sál­greinir og einn af stofn­endum Mið­stöðvar for­eldra og barna, hrósar Ás­mundi Einari Daða­syni fé­lags- og barna­mála­ráð­herra í há­stert í pistli sem hún skrifaði á Vísi.

Sæunn hefur starfað að mál­efnum ungra barna og for­eldra lengi og starfs síns vegna hefur hún fundað all­mörgum sinnum með ráð­herrum fé­lags- og heil­brigðis­mála.

„Til­gangurinn hefur verið að fá liðsinni við mál­efni ung­barna­fjöl­skyldna í vanda. Það hefur ekki verið hlaupið að því að fá sam­tal við jafn upp­tekið fólk en sumir hafa sýnt mál­efninu á­huga og lagt því mikil­vægt lið, til dæmis Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra sem tók á síðasta ári á­kvörðun um að færa starf­semi Mið­stöðvar for­eldra og barna til Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins. Margir hafa talið mig skorta skilning á ríkis­fjár­málum og að allt tal um fram­tíðar­á­vinning þess að fjár­festa í vel­ferð barna væri fal­leg hug­mynd en ó­raun­hæf,“ segir Sæunn sem vindur sér síðan að Ás­mundi Einari sem hún kveðst mjög á­nægð með.

„Svo tók Ás­mundur Einar Daða­son við em­bætti fé­lags- og barna­mála­ráð­herra. Mér hafði ekki gefist ráð­rúm til að panta hjá honum tíma þegar ég var boðuð á fund í fé­lags­mála­ráðu­neytinu. Þar sagði ráð­herra frá sýn sinni á kerfið og hverju þyrfti að breyta. Ég var satt að segja slegin út af laginu vegna þess að mér leið eins og ég hefði skrifað minnis­blaðið hans. Og nú er þetta ekki lengur minnis­blað heldur full­búið frum­varp sem byggir á þeirri for­sendu að okkur beri ekki einungis sið­ferði­leg skylda til að sjá til þess að kerfið standi betur vörð um vel­ferð barna heldur sé það fjár­hags­lega arð­bært,“ segir Sæunn sem vill þakka Ás­mundi Einari og sam­starfs­fólki hans fyrir barn­vænu byltinguna sem þau boða.

„Úr­lausnar­efnin verða sjálf­sagt ekki ein­föld í fram­kvæmd en leiðin er mörkuð. Ég hlakka til að vinna undir for­merkjum far­sældar barna en verð þó að hnykkja á að ég er enn þeirrar skoðunar að fæðingar­or­lofs­frum­varpið þarfnist meiri í­grundunar.“

Ás­mundur Einar var í ein­lægu við­tali í Morgun­blaðinu um helgina þar sem ræddi meðal annars frum­vörpin sem miða að því að gjör­bylta að­stæðum barna og fjöl­skyldna þeirra. Þá ræddi Ás­mundur Einar eigin reynslu enda ólst hann upp við erfiðar að­stæður eins og les­endur komust að raun um.