Særingaprestur sem heimsótti Ísland segir djöfla meðal okkar: „Það eru til raunverulegir djöflar“

Aðventistaprestur sem hefur stundað særingar heimsótti Ísland á dögunum. Fréttablaðið tók hann tali og spurði út í djöfla. Hann segir raunverulega djöfla vera meðal okkar.

„Já, það eru til raunverulegir djöflar meða l okkar. Biblían segir að það séu til djöflar og raunveruleikinn er sá að þeir eru til. Stundum er hægt að skýra þá vísindalega en stundum eru þeir raunverulegir,“ segir aðventistapresturinn Louis Torres. „Þegar ég gerðist prestur fór ég að rannsaka þetta og hitta fólk sem hefur verið andsetið. Okkur hefur tekist að frelsa fólk frá djöflum sem hafa heltekið það.“

Torres hefur meira að segja skrifað bók um djöfla, Demons or Angels kom út árið 2013. Hann segir hættuna við særingar helst fólgna í því að andsetnir hafi oft ákveðin sjúkdómseinkenni og erfitt geti verið að greina á milli. „Þetta eru aðstæður þar sem fólk getur virst andsetið þegar ástæðurnar eru í raun taugafræðilegar. Og því miður er allt of margt fólk tilbúið til þess að finna djöfla í öllu. Það geta verið hræðileg mistök að meta fólk andsetið sem er það ekki og það getur farið mjög illa með fólk að reyna að frelsa það frá illu sem ekkert er.“