Tveir ungir Svíar, 18 og 19 ára piltar, hafa verið sakfelldir í sorglegu máli í Kramfors í Svíþjóð. Mennirnir voru á tveimur bílum þegar þeim datt í hug að fara í heimskulegan leik sem stundum er kallaður „chicken“ á slæmri íslensku.
Leikurinn fer þannig fram að tveir bílar eru látnir aka á móti hvor öðrum á miklum hraða. Sá ökumaður sem er fyrri til að sveigja frá er „heigullinn“. Svo fór að hvorugur sveigði frá og skullu bílarnir saman á mikilli ferð.
Slysið varð í september í fyrra og slösuðust fimm einstaklingar á aldrinum 15 til 19 ára í slysinu. Ein þeirra var Jasmine Berglund, sextán ára stúlka, sem slasaðist mjög alvarlega. Hún var í lífshættu um tíma og dvaldi á sjúkrahúsi í fimm mánuði.
Samkvæmt frétt Aftonbladeter enn óvíst með batahorfur hennar og hefur blaðið eftir dómskjölum að hún sé enn meðvitundarlaus.
Ökumennirnir tveir voru sakfelldir fyrir umferðarlagabrot og fyrir að valda alvarlegu líkamstjóni. Þeir þurfa þó ekki að stitja af sér í fangelsi heldur gegna samfélagsþjónustu og greiða bætur til aðstandenda Jasmine.
Rannsókn á slysinu leiddi í ljós að bílarnir voru á 70 til 75 kílómetra hraða þegar þeir skullu saman. Engin merki voru um að ökumennirnir hefðu reynt að hemla áður en árekstur varð.