Sæmi vissi hvað var í húfi ef hann byrjaði að drekka: „Hættan á að ég missti fjársjóðinn var fyrir hendi“

Sæmundur Pálsson, betur þekktur sem Sæmi rokk, er í athyglisverðu viðtali á vefnum Lifðu núna. Í viðtalinu er farið um víðan völl og ræðir Sæmi meðal annars þá ákvörðun sína að láta áfengi ekki inn fyrir sínar varir.

Í viðtalinu kemur fram að Sæmi hafi aldrei séð foreldra sína undir áhrifum áfengis. Faðir hans fékk sér þó stundum neðan í því þegar hann var ungur en hann fann ungur út að áfengi væri ekki fyrir sig. Sæmi komst að sömu niðurstöðu og sér ekki eftir því.

„Mér þótti og þykir enn svo óskynsamlegt að láta efni eins og áfengi eða önnur vímuefni laða fram annan og verri mann að óþörfu eins og oft gerist því dómgreindin hverfur við áfengisneyslu. Hvaða della er það eiginlega ef þess þarf ekki?” spyr Sæmi og bætir við að þessu fylgi óhamingja.

Sæmi sá það með eigin augum, þegar hann fór sjálfur að skemmta á skemmtistöðum hvaða áhrif áfengi hefur á fólk. Besta fólk féll í freistni og þar með voru fjölskyldur lagðar í rúst með tilheyrandi óhamingju fyrir alla.

„Ég, eins og aðrir, horfðist oft í augu við freistingar. Ég spurði sjálfan mig þá hvern ég væri helst að svíkja ef ég léti undan og svarið var alltaf það sama. Ég var auðvitað fyrst og fremst að svíkja sjálfan mig því hættan á að ég missti fjársjóðinn sem ég átti, sem var yndisleg kona mín og börnin var fyrir hendi og valið var alltaf auðvelt.”

Viðtalið við Sæma má lesa í heild sinni hér og er óhætt að mæla með því.