Sabine biðlar til almennings: „Fólk byrjar ekki sjálfkrafa að hlusta á neyðartímum“

„Fólk byrjar ekki sjálfkrafa að hlusta á neyðartímum á þá sem hafa aldrei talað við þá áður. Fólk byrjar ekki að treysta stofnunum ef þær hafa aldrei verið í neinu samtali við það áður og ef enginn vinnur þar sem það getur samsamað við,“ segir Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, í grein á vef Vísis.

Hún hvetur alla landsmenn til að hjálpa þeim 50 þúsund innflytjendum sem búa hér á landi að vera með í þeirri samkennd sem einkennir nú þjóðfélagið vegna COVID-19 faraldursins. „Flestir leita aðallega á upplýsingasíður frá sínum heimalöndum og fá þá skakka mynd sem er ekki í samræmi við aðstæður og aðgerðir á Íslandi. Skilningur þeirra á aðgerðum hér og traust er lítið og hræðsla sem við verðum vör við í lokuðum Facebook hópum er þyngri en tárum taki,“ segir Sabine.

„Fólk byrjar ekki sjálfkrafa að hlusta á neyðartímum á þá sem hafa aldrei talað við þá áður. Fólk byrjar ekki að treysta stofnunum ef þær hafa aldrei verið í neinu samtali við það áður og ef enginn vinnur þar sem það getur samsamað við.“

Þegar við segjumst öll vera almannavarnir þá megi ekki skilja þennan hóp útundan. „Þið berið ábyrgð á hinum foreldrunum í bekknum eða í íþróttafélaginu, samstarfsfólkinu ykkar og líka nágrönnum af erlendum uppruna. Ef þið eruð með foreldri af erlendum uppruna sem bekkjarfulltrúa eða í stjórn íþróttafélagsins, ef það er trúnaðamaður af erlendum uppruna á vinnustaðnum ykkar, þá eruð þið heppin. Ef ekki, þá er tími til að breyta því núna.“