„Sá næst ríkasti sagðist eiga nóg“

Jón Þór Hannesson er mörgum kunnugur og annar stofnenda Saga Film og oftast kenndur við það fyrirtæki. Hann hóf ungur störf hjá Sjónvarpinu í árdaga og hefur alla tíð fengist við tæknimál og kvikmyndagerð og býr að mjög langri og ríkulegri reynslu sem hann fer nánar yfir í ágætu spjalli við Sigurð K. Kolbeinsson þáttastjórnanda. Jón Þór hefur frá mörgu skondnu að segja enda vita þeir sem hann þekkja að þar fer maður sem oftast er með bros á vör og segir skemmtilega frá og lumar oft á góðum brandara. Einn þeirra segir frá sögu þriggja forríkra einstaklinga sem vita nánast ekkert hvað á að gera við peninginn en frásögn þess næst ríkasta er góð ábending um gildin í lífinu og hvers virði það er hverju sinni. Jón Þór er enn að getur aldrei hætt að fást við kvikmyndagerð en synir þeirra hjóna reka kvikmyndafyrirtækið Republic og Jón Þór nýtur þess að geta orðið þeim að liði þá og þegar eftir því er óskað. Fram undan eru stór draumaverkefni sem Jón Þór útskýrir nánar í samtalinu og áhugavert er að heyra af.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is