Sá látni var með hjálm á rafhlaupahjólinu

Bæði ökumaður rafhlaupahjólsins sem og ökumaður létts bifhjóls sem rákust á í morgun með þeim afleiðingum að ökumaður rafhlaupahjólsins lést, voru með viðeigandi öryggisbúnað.

Þetta kemur fram í frétt á Vísi í dag.

Upplýsingarnar eru hafðar eftir Guðbrandi Sigurðssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Banaslysið átti sér stað norðan við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar rétt upp úr klukkan átta í morgun.

Guðbrandur segir ekki ljóst hvort að ökutækin hafi verið á reiðhjólastígnum eða göngustígnum sem er við Sæbraut.

Þá segir Guðbrandur í samtali við Vísi að aðstæður hafi ekki verið eins og best verður á kosið í morgun en mjög dimmt var og hált: „Við höfum áhyggjum af öllum vegfarendum við slíkar aðstæður, sama hvers konar ökutæki það eru en ekki síður það sem við köllum óvarna vegfarendur sem sjást oft illa í myrkri og bleytu eins og var í morgun. Það er eins og malbikið gleypi stundum umhverfið við slíkar aðstæður. Þá eru götuljós og ökuljós gríðarlega mikilvæg,“ segir Guðbrandur í samtali við Vísi.

Þá segir hann að rannsakað verði hvort innsigli hafi verið rofin á hjólunum og þau þar með komist hraðar en leyfilegt er.

„Þá er til skoðunar hvort létta bifhjólið sé í flokki eitt eða flokki tvö, með 25 km hámarkshraða eða 45 og hvort það hafi yfir höfuð mátt vera á gangstétt eða bara á vegi. Það er til skoðunar,“ segir Guðbrandur enn fremur í samtali við Vísi.