„Við gerum ráð fyrir því að verslanir, söfn, sviðslistir, trúar-og lífsskoðunarfélög, séu allt að 150 manns, þar sem áður voru 100. Gerum ráð fyrir því að líkamsrækt sé heimild, með 50 prósent af leyfilegum fjölda. Og að skemmtistaðir og krár verði með opnað og fái að hafa opið til 22 líkt og aðrir veitingastaðir, með sætisskyldu,“ segir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi.
Hefur hún fallist á tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnarlæknis, að nýrri reglugerð um sóttvarnir. Reglugerðin tekur gildi á mánudaginn og verður í gildi í þrjár vikur, með fyrirvara um frekari herðingu eða slakanir eftir því sem líður á faraldurinn.
Almennar fjöldatakmarkanir verða áfram 20 manns en með rýmri undantekningum en hingað til. Reglur um 2 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Heimilt verður að opna að nýju skemmtistaði, krár, spilasali og spilakassa að uppfylltum skilyrðum.
Fjöldatakmörk gesta í sviðslistum verða aukin úr 100 í 150 manns og trú- og lífsskoðunarfélögum verður heimilt að halda athafnir, þar með taldar útfarir, með 150 manns að hámarki. Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verður 150 manns með hliðsjón af fermetrafjölda og sama gildir um gesti á söfnum.