Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að afturkalla undanþágu sem hefur verið í gildi fyrir rússneska togara til löndunar og umskipunar í íslenskum höfnum.
Svandís kynnti minnisblað þess efnis á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.
„Það fer gegn hagsmunum Íslands að auðvelda veiðar annarra þjóða á stofnum sem ekki eru nýttir á sjálfbæran hátt, því hef ég ákveðið að afturkalla þessa undanþágu. Þessu til viðbótar er það mat íslenskra stjórnvalda að framferði Rússa sé með þeim hætti að óverjandi er að viðhalda sérstökum undanþágum þeim til hagsbóta,“ segir Svandís í fréttatilkynningu en mbl.is greindi fyrst frá.
„Með hliðsjón af nýju mati á hagsmunum Íslands í samskiptum við Rússland vegna innrásar Rússlands í Úkraínu hefur ráðherra tekið ákvörðun um að afturkalla þessa undanþágu,“ segir í tilkynningunni.
Rússneskir togarar sem stunda karfaveiðar hafa haft undanþágu frá 1999.
Rússneskum stjórnvöldum verður nú tilkynnt um ákvörðunina með formlegum hætti auk þess sem tilkynning verður send í gegnum alþjóðlegt tilkynningarkerfi á vegum Landhelgisgæslu Íslands.