Rússneskir glæpamenn njóta nafnleyndar í gegnum Ísland

Rússneskir glæpamenn sem meðal annars svíkja fé út úr grunlausum Áströlum fela slóð sína á Íslandi.

Fréttablaðið fjallar um þetta í dag og segir frá því að rússnesku fjársvikamennirnir geri það með því að hýsa svikasíður hjá fyrirtæki sem kallast Witheld for Privacy ehf. Hafa netöryggisfræðingar rakið síður á borð við AusBondTrust, Au-Investor og Millenium Bonds til rússnesks hóps, DarkSide, sem stundar svik á myrkranetinu svokallaða.

Witheld for Privay er fyrirtæki sem er skráð á Íslandi og sérhæfir það sig í að gera fólki kleift að fela slóð sína á netinu. Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að upplýsingar og heimilisfang Witheld for Privacy á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur virki sem staðgengill fyrir raunverulegar upplýsingar eigenda vefsíðna.

Fréttablaðið segir frá því að þegar haft var samband við starfsfólk á Íslandi hafi blaðamanni verið bent á að Mexíkói, búsettur í Bandaríkjunum, að nafni Sergio Raygoza Hernandez væri stjórnarmaður og forsvarsmaður fyrirtækisins. Starfsfólk hér myndi ekki svara neinum spurningum.

Nánar í Fréttablaðinu í dag.