Rúss­nesk stjórn­völd setja níu Ís­lendinga á svartan lista – hefnd fyrir að tala gegn Rúss­landi

Níu Ís­lendingar eru á „svörtum lista“ rúss­neskra stjórn­valda sam­kvæmt rúss­neska utan­ríkis­ráðu­neytinu. Ís­lendingunum níu verður ekki hleypt inn til Rúss­lands sam­kvæmt til­kynningu en á­samt þeim eru sex­tán Norð­menn, þrír Græn­lendingar og þrír Fær­eyingar á Svarta listanum.

„Þar sem Ís­land, Noregur, danska sjálf­stjórnar­svæðið Græn­land og Fær­eyjar hafa tekið þátt í refsi­að­gerðum gegn Rúss­landi á­samt Evrópu­sam­bandinu, sem meðal annars inni­heldur haftir á rúss­neska em­bættis­menn hafa sam­bæri­legar að­gerðir verið teknar gegn níu full­trúum Ís­lands, sex­tán norskum full­trúum, þremur frá Græn­landi og þremur frá Fær­eyjum,“ segir í til­kynningu utan­ríkis­ráðu­neytisins sem birtist á ensku á rús­senska miðlinum TASS.

Utan­ríkis­ráðu­neytið nafn­greinir ekki ein­stak­lingana á listanum en tekur fram að þar er að finna Al­þingis­menn, em­bættis­menn, ein­stak­linga úr við­skipta­lífinu, há­skóla­sam­fé­laginu og fjöl­miðlum á­samt opin­berum per­sónum sem hafa opin­ber­lega talað gegn Rúss­landi.

Ís­land var sett á lista yfir ríki sem væri ó­vin­veitt gagn­vart Rúss­landi í byrjun mars fyrir að hafa tekið þátt í refsi­að­gerðum gegn Rúss­landi eftir að Rússar gerðu inn­rás inn í Úkraínu í lok febrúar.