Rúss­nesk börn verða fyrir ein­elti í ís­lenskum skólum: „Rangt að ráðast á rúss­nesku þjóðina“

Dæmi er um að rúss­nesk börn í grunn­skóla hér á landi verði fyrir að­kasti vegna styrj­aldar Pútíns við Úkraínu. Þetta sagði Stein­grímur Árna­son í Frétta­vaktinni í gær en hann starfaði og bjó Rúss­landi og vinnur nú fyrir hug­búnaðar­fyrir­tæki Dicino sem hefur meðal annars bæki­stöðvar í Kænu­garði.

Hann var gestur Hring­brautar í gær og ræddi um á­standið í Rúss­landi, stjórnar­hætti Pútíns og stöðuna í Úkraínu.

,,Það er rangt að ráðast á rúss­nesku þjóðina þegar einn brjál­æðingur eins og Pútín tekur allar á­kvarðanir varðandi inn­rásina í Úkraínu,“ segir Stein­grímur.

Hins vegar viti hann um rúss­neskan dreng sem lagður hefur verið í ein­elti í skóla hér­lendis vegna inn­rásarinnar. Stríðið sé alls ekki að fara á þann veg sem Pútín hafi ráð­gert, segir Stein­grímur.

Hægt er að horfa á Fréttavaktina í spilaranum hér fyrir neðan.