Rússar reknir úr Eurovision

Sam­tök evrópskra sjón­varps­stöðva hafa á­kveðið að meina Rúss­landi þátt­töku í Euro­vision keppninni í ár. Þetta kemur fram í stuttri til­kynningu á vef söngva­keppninnar.

Í til­kynningunni segir að á­kvörðunin hafi verið tekin með hlið­sjón af lögum keppninnar og gildum sam­takanna. Áður hafði komið fram að Rússar myndu fá að keppa, þrátt fyrir inn­rásina í Úkraínu. Úkraínumenn höfðu áður kallað eftir brottrekstri þeirra úr keppninni.

Í til­kynningu frá EBU segir að stríðið í Úkraínu þýði að þátt­taka Rúss­lands í keppninni myndi þýða að enginn friður yrði um keppnina í ár.

Rússland vann síðast Eurovision árið 2008.