Á flokksþingi Framsóknarflokksins á dögunum sagði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra þetta: „Vonandi ber rússnesku þjóðinni gæfa til að losa sig við illmennin úr stjórn þessa merkilega lands sem Rússland er,“
Ummælin fara ekki vel ofan í rússneska snediráðið sem sendir Sigurði pillu á Facebook. Í færslu sendiráðsins er því haldið fram að orð Sigurðar séu svívirðileg afskipti af innanríkismálum Rússa, og að um sé að ræða beint ákall íslenskra stjórnvalda um valdaskipti í Rússlandi.
Þá krefur sendiráðið Sigurð Ingi um formlega afsökunarbeiðni vegna ummælanna.
Nánar er hægt að lesa um málið á Fréttablaðið.is.