Svo virðist sem heill her Rússa hafi verið ræstur út til að herja á Instagram-síðu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Katrín birti mynd á Instagram-síðu sinni á dögunum þar sem sjá má flottan hóp kvenna fyrir utan ráðherrabústaðinn í vikunni þar sem Svandís Svavarsdóttir tilkynnti tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum.
Eins og sést á færslu Katrínar hér að neðan eru komin yfir 250 athugasemdir, langsamlega flestar á rússnesku, við myndina.
Ef rússneskukunnáttan er ekki að flækjast fyrir okkur virðast þeir, sem athugasemdirnar skrifa, vera ósáttir við að Katrín hafi lokað á einstakling að nafni Denis Denski sem heldur úti Instagram-reikningnum Denski blog. Að minnsta kosti er Denis þessi taggaður í mörgum athugasemdum og ef marka má þýðingarvél Google virðist óánægjan beinast að því að lokað hafi verið á hann.
„Ó, Katrín, þetta hefðirðu ekki átt að gera,“ segir til dæmis í einni athugasemdinni.
Nafnið á bóluefni Rússa gegn COVID-19, Spútnik V, kemur einnig nokkuð oft fyrir í færslunum og virðist málið tengjast bóluefninu að einhverju leyti.
Denis er með rúmlega 50 þúsund fylgjendur á sinni persónulegu Instagram-síðu og tæplega 200 þúsund fylgjendur á Instagram-blogginu. Katrín hefur ekki tjáð sig um þetta einkennilega mál en komið hefur fram í íslenskum fjölmiðlum að ríkisstjórnin hafi skoðað hægt væri að fá bóluefni Rússa. Ekkert er þó fast í hendi í þeim efnum.