Ruslasafnari við Leifsgötu fær á sig dagsektir: „Þetta er fínn strákur“

Eigandi lóðar við Leifsgötu í miðborg Reykjavíkur hefur fengið á sig dagsektir vegna ítrekaðra krafna um að hann hreinsi lóðina. Fréttablaðið fjallar um málið í dag.

Í fréttinni kemur fram að timbur, málmur, plast og annar úrgangur sé á lóðinni sem er lýti fyrir umhverfið. Blaðamaður Fréttablaðsins bankaði upp á í umræddu húsi en enginn kom til dyra,.

Í bréfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna málsins kemur fram að þann 27. október síðastliðinn hafi verið farið í eftirlitsferð og svo aftur 30. nóvember. Á þeim rúma mánuði sem liðinn var á milli heimsókna hafði lítillega verið tekið til á lóðinni.

Kvörtun barst svo aftur í febrúar og í eftirlitsferð sem farin var í kjölfarið kom í ljós að búið var að bæta við úrgangi og lausamunum. Mátti finna fjórar til sex þvottavélar, ísskápa, lítinn bát, timbur og annan úrgang. Veittur var lokafrestur sem rann út um miðjan febrúar. Nú virðist mælirinn vera orðinn fullur og hefur Heilbrigðiseftirlitið lagt dagsektir á lóðina.

Nágranni sem Fréttablaðið ræddi við kvaðst feginn því að hreyfing væri komin á málið. „Þetta er fínn strákur en það fylgir honum vissulega mikið drasl.“