Ruslana, ruslamálaráðherra Veritas sem finna má í myndbandi fyrirtækisins á vef þess hefur valdið usla á Twitter. Netverjum finnst uppátækið ónærgætið.
Um er að ræða persónu sem búin hefur verið til af fyrirtækinu til að minna fólk á að flokka rusl. „Já Ruslana fæddist fyrir nokkrum árum þegar við vorum í þessu flokkunarátaki,“ segir starfsmaður Veritas áður en hún klæðir sig í búning Ruslönu.
„Veritas gefur út samfélagsskýrslu þar sem mascotið fyrir endurvinnslu er Ruslana 😬😬😬, austur-evrópska konan sem fer út með ruslið þeirra,“ skrifar einn netverja á Twitter í færslu sem hefur vakið mikla athygli.
„Mér er svo illt í tilverunni eftir að hafa horft á þetta myndband. Hvað í fjáranum er fólk að hugsa?“ spyr annar netverja.
Mér er svo illt í tilverunni eftir að hafa horft á þetta myndband. Hvað í fjáranum er fólk að hugsa?
— Ásdís (@asdiso) April 8, 2022