Runólfur Ágústsson athafnamaður kallar eftir því að ráðist verði í framkvæmdir við borgarlínulest frá Reykjavík til Keflavíkur.
Runólfur viðrar þessa hugmynd sína í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann bendir á að nýr flugvöllur í Hvassahrauni sé ekki lengur raunhæfur möguleiki. Með tilliti til hugsanlegra eldsumbrota sé Keflavíkurflugvöllur frábærlega staðsettur utan umbrotasvæðis Reykjaness og í heppilegri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
„Hann er tengdur innviðum landsins með tveimur leiðum; Reykjanesbraut og Suðurstrandarvegi, sem að mati jarðvísindamanna er nánast ómögulegt að myndu geta rofnað á sama tíma. Það er möguleiki að hraun geti runnið yfir annan þessara vega og rofið samgöngur tímabundið, en þá er ávallt varaleið til staðar. Umræðan um Hvassahraun tefur fyrir framtíðarlausn á innanlands- og millilandaflugi,“ segir hann.
Runólfur er þeirrar skoðunar að áframhaldandi uppbygging Keflavíkurflugvallar sem meginflugvallar sé skynsamleg samhliða gerð varaflugvallar utan Reykjaness og að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur og samþætta við millilandaflug líkt og gert er í Gardemoen í Ósló.
„Það liggur fyrir að fluglest milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur er arðbær framkvæmd út frá arðsemi fjárfesta, samfélagi og umhverfi. Grænar skilvirkar almenningssamgöngur á þessari leið eru löngu tímabærar! Fluglest frá KEF til BSÍ, líkt og í Ósló og Stokkhólmi, yrði 18-20 mínútur á leiðinni og að langmestu leyti kostuð með fargjöldum erlendra ferðamanna. Með lest úr Vatnsmýri til Keflavíkurflugvallar myndi innanlandsflugið styrkjast og ferðafólk gæti bókað sig hvaðanæva að úr heiminum í flug til Akureyrar, Egilsstaða eða Ísafjarðar með millilendingu í Keflavík, án viðkomu í Reykjavík,“ segir hann.
Þá séu ótaldir samlegðarmöguleikar Borgarlínu og Fluglestar.
„Jarðgöng frá Straumsvík um Hafnarfjörð, Garðabæ, Smáralind og Kringlu í Vatnsmýri gætu bæði rúmað fluglest og sjálfkeyrandi metróvagna, líkt og ganga í Kaupmannahöfn. Slík lausn myndi vissulega kosta töluverða fjármuni, en á sama tíma leysa samgöngumál höfuðborgarsvæðisins að stórum hluta. Við erum að fjárfesta fyrir tæpa 30 milljarða í samgöngubótum á Vestfjörðum sem mun gjörbreyta lífskjörum þeirra sem þar búa. Við ætlum að verja 45 milljörðum í Fjarðaheiðargöng. Hugsum líka stórt í Reykjavík!“