Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að kílómetragjald sé skynsamlegasta og sanngjarnasta gjaldtökuleiðin af bílum og umferð til framtíðar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein eftir Runólf í Fréttablaðinu í dag.
Runólfur bendir í grein sinni á það að þeim ökutækjum fjölgi sem greiða ekki fyrir notkun vegakerfisins með sama hætti og bensín- og dísilbílar og stefnan sé að fjölga hreinorkubílum vegna jákvæðra áhrifa á umhverfið.
„Kaupendur rafbíla njóta skattaívilnana. En ljóst er að hluti notenda getur ekki til lengdar staðið undir uppbyggingu og viðhaldi vega meðan aðrir sleppa. FÍB telur að kílómetragjald sé skynsamlegasta og sanngjarnasta gjaldtökuleiðin af bílum og umferð til framtíðar,“ segir hann.
Runólfur nefnir að umræða um þessa gjaldtökuaðferð geti fljótt orðið flókin og skapað misskilning sem heftir frekari úrvinnslu. Því þurfi að hefja undirbúning strax með fjölbreyttu samráði við bíleigendur og hagsmunaaðila.
„Æskilegt væri að setja áformaða gjaldtöku upp í reiknivél þannig að hver og einn bíleigandi geti áttað sig á kostnaðinum. Almenningur þarf að geta mátað mismunandi akstursnotkun og ökutæki við framkomnar tillögur.“
Runólfur er þeirrar skoðunar að kílómetragjaldið eigi að vera breytilegt eftir orkugjafa, þyngd ökutækis og notkun þess. Það þurfi að vera gegnsætt að um sé að ræða skynsamlega, sanngjarna og hagkvæma leið til standa undir kostnaði við vegakerfið. Gjaldtakan eigi að vera hvetjandi til kaupa og notkunar á bílum sem hafa minni umhverfisáhrif.
Runólfur bendir á að veitufyrirtæki noti sams konar innheimtuaðferð, það er að mæla notkun. Akstursnotkunina, kílómetragjaldið, væri hægt að áætla í upphafi út frá meðalakstri ökutækja og síðan endurskoða með tilliti til raunverulegrar akstursnotkunar.
„Þetta þekkja neytendur í tengslum við kaup á raforku og heitu vatni. Álestur kílómetrastöðu getur farið fram með fjölbreyttum hætti; við árlega skoðun hjá skoðunarstöð, hjá viðurkenndum verkstæðum og þjónustuaðilum, við eigendaskipti, með skyndiskoðunum, með eigin álestri og jafnvel beint frá bílnum með upplýstu samþykki. Til lengri tíma væri hægt að fella aðra skatta af bílum og umferð undir kílómetragjaldið, svo sem bifreiðagjaldið og vörugjöld við innflutning.“