Runólfur grillaður af Eddu Falak vegna árangurs Annie Mist: „Var aldrei að kalla hann karlrembusvín“

Runólfur Trausti Þórhallsson, íþróttafréttamaður Vísis, fékk rækilega á baukinn hjá Eddu Falak, hlaðvarpsstjórnanda og áhrifavaldi, og félögum hennar á Twitter vegna vals á fyrirsögn á frétt um Crossfitdrottninguna Annie Mist Þórisdóttir. Runólfur, sem hefur fylgst vel með framgangi Annie Mist á Rogue International-mótsins í Crosssfit í Texas, sagði í síðustu frétt: „Anníe Mist endaði í öðru sæti eftir slakan árangur í síðustu grein“.

Þetta fór illa í Eddu og fleiri:

Píratinn Valgerður Árnadóttir, sem er einnig formaður Samtaka grænkera, var brjáluð:

„Slakan árangur??? Var silfur handboltaliðsins á ÓL “slakur árangur?” Hvaða skíta fréttamennska er þetta?“

Runólfur lét þetta ekkert á sig fá enda veit hann allt um málið:

„Alltaf gaman þegar fyrirsagnirnar manns vekja athygli og fólk ásakar mann um að vera karlrembusvín.

Sama fólk las eflaust ekki hinar fréttirnar og áttar sig því ekki á að Anníe Mist var í forystu framan af móti.

En ég meina, allt fyrir Likes“

Baráttukonan Ólöf Tara segir:

„Gagnrýnin snýr að fyrirsögn í þessari einu grein. En okei karlrembusvín.. ég hef ekki séð þá gagnrýni… en íþróttakonur eru mjög oft lítillækkaðar í fréttum. Hér er ég ekki að segja að það hafi verið ætlunin, en mér þykir þessi fyrirsögn gera lítið úr henni.“

Runólfur svaraði henni keikur:

„Get ekki tekið undir lítillækkun íþróttakvenna í fréttum. Held að þar sé gríðarleg uppsveifla í gangi sem mun aðeins halda áfram. Hvað varðar fyrirsögnina þá getur fólk túlkað hana að vild.“

Katrín nokkur, sem hafði gagnýnt fyrirsögnina, sagði:

„Var aldrei að kalla hann karlrembusvín, en sé samhengið útfrá þessu en þetta er ekki fyrsta fréttin á síðustu vikum sem er með lengri fyrirsögn. Getur ekki reiknað með því að fólk lesi alltaf allar 4 fréttirnar, hefði alveg verið hægt að nefna þetta inni greininni.“

Runólfur lauk svo á Gif-mynd: