Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri segir að Íslendingar ættu að taka flóttamönnum frá Venesúela opnum örmum. Runólfur skrifar áhugaverða grein um þetta sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
„Úrskurður nefndarinnar í máli einstaklings frá Venesúela í fyrra opnaði á fordæmisgildi fyrir aðra og í fyrra fengu 400 manns hæli hér á landi á þeim grundvelli. Nú bíða 500 aðrir afgreiðslu Útlendingastofnunar sem erfitt er að sjá að geti orðið á annan veg en að hleypa þeim inn í íslenskt samfélag,“ segir Runólfur og bætir við að Ísland sé eina land Evrópu sem hefur opnað dyr sínar fyrir flóttafólki frá Venesúela.
Runólfur bendir svo á merkilega staðreynd um þennan hóp.
„Af þeim 400 sem fengu hæli hér í fyrra eru yfir 80% hættir að þiggja aðstoð og komnir í vinnu. Það fólk er farið að skapa okkur og sjálfu sér verðmæti og aðlögun þeirra að íslensku samfélagi gengur vel. Þetta er harðduglegt og vel menntað fólk sem er bæði nauðsynleg og ánægjuleg viðbót við okkar menningar- og efnahagslíf.“
Runólfur bendir á þá staðreynd að hér vantar fólk og bætir við að hér fáum við vinnandi hendur og starfandi huga sem hafa hlotið menntun og þjálfun í öðru samfélagi okkur að kostnaðarlausu.
„Venesúela er samfélag undir oki einræðis og kúgunar vinstrisinnaðra sósíalista. Verum stolt af því að veita þeim, eitt Evrópuríkja, skjól. Tökum því á móti þessum 500 sem nú bíða afgreiðslu og munu styrkja og efla okkar samfélag og efnahagslíf.“
Runólfur segir að lokum að í sérstöðu okkar gagnvart flóttafólki frá Venesúela felist eitt stærsta tækifæri okkar sem þjóðar.
„Við fáum með þeim nýja íbúa sem við þurfum á að halda. Öll gögn og allar upplýsingar benda til þess að framlag þeirra muni efla hér menningarlegan og efnahagslegan vöxt og verða íslensku samfélagi til mikils gagns.“