Stuðningsmenn Arsenal virðast hafa kynnt sér íslenska landsliðsmarkvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson í þaula. Eins og fjölmiðlar hafa greint frá er talið líklegt að Rúnar gangi til liðs við enska stórliðið.
Breska blaðið Metro greinir frá því að stuðningsmenn Arsenal hafi grafið upp gömul tíst Rúnars um Arsenal-liðið og Rúnar hafi brugðist við með því að eyða þeim.
Svo virðist vera sem markvörðurinn sé harður stuðningsmaður enska liðsins. Í einu tístinu fór Rúnar ekki beint fögrum orðum um knattspyrnustjórann Arsene Wenger sem stýrði Arsenal-liðinu um margra ára skeið. „Djöfull er þessi Wenger gæi fakkin heimskur #endafranskur“. Svo sagði hann: „Arsene Wenger er aðeins of heimskur! #frenchfuck“
Stuðningsmenn Arsenal þýddu þessi tíst og voru sumir ekki beint hrifnir. Aðrir stuðningsmenn bentu þó á að Rúnar hefði verið unglingur þegar hann lét umrædd ummæli falla og þau hefðu fallið á nokkuð erfiðum tímum fyrir enska félagið þegar flest gekk á afturfótunum. Eru tístin frá þeim tíma þegar Arsenal-liðið tapaði 8-2 í eftirminnilegum leik gegn Manchester United.
Það er vonandi fyrir Rúnar að hann gangi til liðs við enska stórliðið og ættu stuðningsmenn Arsenal að geta verið sáttir við að fá einn gallharðan stuðningsmann í leikmannahópinn. Það er að minnsta kosti nokkuð ljóst að Rúnar mun gefa allt sem hann á til að hjálpa liðinu.
Frétt Metro.
Don't bring this bastard near my club. @Arsenal pic.twitter.com/sDaM1pdsu7
— qaliil (@qaliilshaafto) September 14, 2020