Ruddist inn á heimili móður sinnar í gær­kvöldi og gekk í skrokk á stjúp­föður sínum

„Það er hræði­­legt að þurfa að fá nálgunar­bann á son sinn. en hann er bara ekki sonur minn núna. Ekki á meðan hann er í þessari neyslu. Þá þekkir maður ekki manninn.“

Þetta segir Eva Dögg Sigur­geirs­dóttir en í gær­kvöldi réðist sonur hennar inn á heimili hennar á­samt öðrum manni og gekk í skrokk á eigin­manni hennar Bjarna Á­ka­syni, fjár­festi og at­hafna­manni.

Svona var Bjarni eftir árásina.

Eva og Bjarni ræða málið við Vísi.

„Þetta snerist allt um að sækja af mér ein­hvern pening með ein­hverju bulli. Ég bara skellti á hann, nenni ekki að hlusta á svona vit­­leysu,“ segir Bjarni. „Þá fer hann að hringja í móður sína og þetta stig­­magnast með deginum; hann hringir og hringir og fer að senda mér skila­­boð með hótunum,“ segir Bjarni. Þeir fé­lagar hafi svo mætt í gær heim til hans.

„Og þeir bara ganga í skrokk á mér. Þetta er í fyrsta skipti sem ég lendi í svona. Það sem mann svíður mest er að börn hafi þurft að horfa upp á þetta,“ segir hann. Hjónin hafa kært mennina til lög­reglu. Þeir voru báðir hand­teknir í gær en sleppt úr haldi í dag.

„Maður kærir og kærir en svo er þessum mönnum bara hleypt aftur í um­­­ferð. Þeir þurfa auð­vitað næsta skammt og maður veit ekki hvað þeir gera þá. Dagurinn hjá þeim í þessari neyslu kostar ein­hvern 150 þúsund kall og þeir leita bara leiði til að fjár­­magna hann. Þetta í gær var ein leiðin,“ segir Bjarni.